Heimasíða Þorgeirs Arasonar



9.12.06
Aftur á Netið

Í fyrstu viku nýs kirkjuárs, og í fyrstu viku próflestrar, tók ég þá ákvörðun að snúa aftur á Netið, einkum mér sjálfum til ánægju en e.t.v. einhverjum öðrum í leiðinni. Nýja bloggsíðan mín er vistuð á kerfi mbl.is og er slóðin: http://tharason.blog.is/blog/tharason./ Sjá má hér að neðan að síðustu færslu á þessari síðu setti ég inn rétt áður en ég hélt heim frá Frakklandi vorið 2005. Ég hef verið að dunda mér við að lesa þessi rafrænu dagbókarskrif mín frá árinu í Strasbourg og haft verulega gaman af enda vekja þau upp góðar minningar. En í stað þess að deila dagbókarfærslum frá dvöl sem skiptinemi með lesendum Netsins mun ég nú deila hugðarefnum af ýmsum toga.

Þessa dagana sit ég við próflestur, en fram undan eru tvö próf með dags millibili. Siðfræði lífs og dauða á miðvikudag og Ritskýring Gamla testamentisins - Saltarinn (Davíðssálmarnir) á fimmtudag. Af þessum tveimur fögum vekja Sálmarnir mun meiri áhuga hjá mér. Þrátt fyrir próflestur hefur aðventan verið mér ofarlega í huga síðustu daga. Minn eftirlætisaðventusálmur, „Gjör dyrnar breiðar," er einmitt að hluta ortur út af 24. sálmi Saltarans, en í þeim Davíðssálmi segir:

7. Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga. 8. Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan. 9. Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga. 10. Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.

Í fyrrnefndum aðventusálmi Helga Hálfdánarsonar segir:

Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.
Þú, Herrans kristni, fagna mátt,
því kóngur dýrðar kemur hér
og kýs að eiga dvöl hjá þér.

---

Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt,
þig, hjarta, prýð sem best þú mátt,
og trúarlampann tendra þinn,
og til þín bjóð þú Jesú inn.

Ég opna hlið míns hjarta þér,
ó, Herra Jesús, bú hjá mér,
að fái hjálparhönd þín sterk
þar heilagt unnið náðarverk.

Ó, kom, minn Jesú, kom sem fyrst,
ó, kom og mér í brjósti gist,
ó, kom þú, segir sála mín,
ó, seg við mig: Ég kem til þín.

Það er gott að gera tvö síðustu erindi þessa sálms að bæn sinni á aðventunni.


Posted at 9.12.06 by thorgeir
já áfram svona (1)  




8.6.05
A heimleid!

Komid thid sael og blessud! Thetta er liklega i sidasta skipti sem ég kemst i tölvu hérna uti og thar med i sidasta skipti sem ég skrifa a siduna hédan. Eg hugsa reyndar ad ég leggi siduna nidur eftir ad ég kem heim thar sem hun var adallega aetlud til ad ég gaeti sent fréttir af mér hér uti. En profunum lauk sem sagt loksins hja mér i gaer. Eg held ad thau hafi bara gengid alveg thokkalega og ég get thess vegna farid sattur heim eftir fimm daga. Nu er bara ad vona ad kennararnir verdi snöggir i yfirferdinni svo ég geti fengid allar einkunnir adur en ég fer heim. Thessa dagana og fram a sunnudag stendur yfir tiltekt og thrif i herberginu minu. Eg reyni ad skilja vid herbergid adeins hreinna en thad var thegar ég tok vid thvi. Kannski tekur thad thvi tho varla thvi endurnyjun a byggingunni hlytur ad vera i nand. Thad er ljost ad thu ad ég muni sakna ymislegs hédan thegar ég kem heim - og ekki sist folksins sem ég er buinn ad kynnast - mun ég ekki sakna studentagardsins mins. Hvorki skitugu klosettanna né sturtnanna ad minnsta kosti og sjalfsagt ekki graena herbergisskapsins mins heldur. Eg a erfitt med ad skilja tha sem geta buid vid thessar adstaedur öll namsar sin - en margir nemendur hér koma audvitad fra t.d. Afrikulöndum thar sem their eru ef til vill vanir enn verri adstaedum. - Vonda kranavatnsins mun ég heldur ekki sakna thegar ég kem heim, og enn sidur "vinalegu" kvennanna a skrifstofum skolans. En ég er gridarlega anaegdur med ad hafa drifid mig hingad ut enda er thessi vetur buinn ad vera frabaer lifsreynsla, sem ég get ekki annad en maelt med fyrir alla nemendur, sem thad geta. Jafnanaegdur og ég er med ad hafa verid hér i vetur get ég ekki neitad ad liklega er ég enn anaegdari med ad yfirgefa Strasbourg eldsnemma a manudagsmorgun og Frakkland seinna um daginn til ad komast heim til Islands - bests i heimi!

Posted at 8.6.05 by thorgeir
Hvað hefur þú að segja  




1.6.05
Lesid

Eftir mikla hitabylgju fyrir og um sidustu helgi for ad rigna og kolna a manudaginn, mér til mikils léttis. Thad er notalegt ad slaka a i solinni thegar hitinn fer ad nalgast 30 gradur, en thegar hann fer ekki thar undir nema yfir blanottina og madur er thar ad auki i proflestri er astandid ordid nokkud othaegilegt. En nu er vedrid ljomandi fint i Strasbourg, léttskyjad en ekki of heitt. Proflestur gengur bara alveg thokkalega og thad er gott ad hafa ruma viku til ad lesa i rolegheitum fyrir thrju prof a manudag og thridjudag. Eitt theirra er reyndar munnlegt, islam, sem mér finnst alltaf frekar othaegilegt. Reynsla min af theim er lika frekar takmörkud, bara nokkur studentsprof i MR og örfa prof hér uti. Vonandi mun uppskeran engu ad sidur verda hagstaed nu i lok Erasmus-arsins. Thad er auk thess hausverkur minn thessa dagana ad reyna ad finna taekifaeri til ad senda nokkur kilo af gudfraedibokum til Islands sem fyrst, svo ad ég sleppi vid yfirvigt a heimleidinni. - Ekki man ég eftir fleiru ad segja i bili og aetla thvi bara ad fara aftur ad lesa.

Posted at 1.6.05 by thorgeir
Hvað hefur þú að segja  




27.5.05
Sumar og sol i Stras

Thad er kominn timi til ad skrifa nokkur ord a siduna tho ad ég hafi varla tima til thess fyrir proflestri, sem er rétt ad byrja hja mér nu thegar islenskir gudfraedinemar eru löngu bunir i sinum vorprofum. En margir bua sér nu einmitt til mestan tima til ad skrifa a Netid thegar a ad gera annad og ég feta i theirra fotspor. Sidustu kennslustundir vetrarins hja mér voru i gaer og tha flutti ég einmitt fyrirlesturinn minn um thjodahatidina. Thad gekk alveg ljomandi vel og var ég anaegdur med ad ljuka vetrinum i skolanum thannig. I dag er svo fyrsti dagurinn af 10 sem ég hef til ad lesa fyrir thrju prof 6. og 7. juni, thad sidasta sem ég geri i gudfraedideildinni hér i Strasbourg. Thad getur tho verid erfitt ad einbeita sér thegar solin skin uti eins og hun hefur gert sidustu dagana og i dag er um 30 stiga hiti uti. Eg vona bara ad eitthvad verdi eftir af goda vedrinu thegar profunum lykur og adur en ég fer heim thann 13. I gaerkvöldi gaf ég mér samt tima til ad fara i pikknikk i godum hopi nidri vid Rin og var gott ad geta thannig kvatt tha vini mina hérna, sem fara heim a naestu dögum, enda eru flestar deildir nu bunar adrar en gudfraedin.

Posted at 27.5.05 by thorgeir
Hvað hefur þú að segja  




23.5.05
Thrjar vikur eftir...

Ja thad er ekki laust vid ad madur sé farinn ad hlakka til ad koma heim og telja dagana, sem eftir eru i Frakklandi. Ekki sist nu thegar sumarid laetur litid a sér kraela i Alsace. Um helgina var blautt og hraslagalegt og a laugardagsmorguninn vaknadi ég um sjöleytid vid thrumuvedur. Thrumur heyrdi ég svo ödru hverju allan daginn. Thad fer alltaf svolitill hrollur um mig vid ad heyra hljodid i thrumunum thvi vissulega eru eldingarnar ekki haettulausar. Mér finnst fyndid ad Frakkarnir spyrji mig undrandi hvernig Islendingar thori eiginlega ad bua nalaegt öllum thessum eldfjöllum sem gaetu farid ad gjosa a hverri stundu - en hugsa ekkert ut i ad eldingum getur stungid nidur hvenaer sem er hér a meginlandinu. - Mestur timi minn fer i augnablikinu i ad undirbua fyrirlestur i kirkjufraedum a fimmtudaginn, sem verdur sidasta verkefni mitt i skolanum fyrir proflestur. Erindid fjallar um thjodahatid, haldna i mjög althjodlegu hverfi i Strasbourg ad frumkvaedi katholska soknarprestsins thar. Liklega er thessi vidburdur ekki osvipadur thjodahatidinni a Vestfjördum. Öll samtök og hopar folks af ymsum thjodernum ur hverfinu taka sig saman og undirbua thennan hatidlega sunnudag i januar ar hvert. Allir utbua sérrétti fra sinu landi, sem seldir eru a mjög vaegu verdi, syna buninga, grimur og fleira fra heimalöndum sinum og ennfremur dansa, söngva, aevintyri og allt sem folki dettur i hug. Ég hef nu thegar talad vid fjora thatttakendur af ymsum thjodernum, sem allir eru sammala um ad thessi vidburdur hafi gjörbreytt andrumsloftinu i hverfinu, thar sem folk af tugum thjoderna byr hlid vid hlid.

Posted at 23.5.05 by thorgeir
já áfram svona (3)  




Next Page












Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed